02/09/2026
Völuberg ásamt Eflu hafa umsjón og eftirlit með kjarnaborunum fyrir Eyjagöng. Stór áfangi náðist um síðustu helgi þegar kjarnaborun lauk í Landeyjum. Framundan er gerð borholulýsinga, jarðfræðiskýrslu og skýrslu um fýsileika Eyjaganga.
Búist er við niðurstöðum um hvort tæknilega og fjárhagslega sé fýsilegt að leggja göng milli lands og Eyja fyrir árslok þegar verkfræðistofur skila úttektum á fyrirliggjandi gögnum. Öllum jarðvegsrannsóknum er lokið.